21.1.2009 | 11:51
Burt með skrílinn
Ég skora á Björn Bjarnason að síga lögreglunni á skrílinn sem situr á þingi og að þeir þingmenn eins og Álfheiðar Ingadóttur sem vogar sér að kíkja út um glugga verði handjárnaðir og sprautað á þá piparúða. Ég skora á lögreglumenn að taka sér frí frá vinnu og láta fólk vera á meðan verið er að hreinsa skítinn úr Alþingishúsinu.
Mótmæla aftur í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég held þið ættuð að lesa færsluna aðeins betur áður en þið skjótið manninn, félagar.
Karl, 21.1.2009 kl. 12:05
Já, hún inniheldur meira en fyrirsögnina eina.
Óðinn, 21.1.2009 kl. 12:07
Fyrirgefðu Örn. Ég tek orð mín algerlega til baka. Fljótfærni hjá mér í lestri. Fyrirgefðu.
Þú mátt gjarnan taka færsluna mína út.
hilmar jónsson, 21.1.2009 kl. 12:08
Haha, mönnum er greinilega mjög heitt í hamsi. Við skulum reyna að passa fljótfærnina ;).
Elías Þórsson (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 12:13
Já skamm á mig.
hilmar jónsson, 21.1.2009 kl. 12:15
Sammála, handtökum skrílinn. Byrjum á Birni Bjarnasyni og færum okkur síðan niður ráðherralistann.
Guðmundur Auðunsson, 21.1.2009 kl. 12:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.